Bókunarþjónusta ITA - Fjölþætt þjónusta við ferðamenn
Iceland Travel Assistance rekur upplýsinga- og bókunarþjónustu fyrir erlenda og íslenska ferðamenn í Reykjavík. Afgreiðslustaðir eru á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, Radisson Blu Saga Hotel, Icelandair Hotel Loftleiðir, Iðu Verslunarmiðstöð, Umferðarstöðinni BSÍ og í þjónustumiðstöð við Skarfabakka, auk Upplýsingamiðstöðar Ferðamanna í Reykjavík. Þar fer meðal annars fram:
- Víðtæk upplýsingaþjónusta
- Bókanir í ferðir, afþreyingu, gistingu og flug
- Edurgreiðsla virðisaukaskatts
- Gjaldeyrisviðskipti
- Verslun með íslenska hönnun
- Síma- og internetaðgangur
Iceland Travel Assistance heldur úti tveim bókunarsíðum þar sem ferðamenn geta bókað stakar ferðir sem og fjölbreyttar pakkaferðir.
www.icelandonline.com
www.citycentre.is
Iceland Travel Assistance leggur áherslu á faglega og ítarlega ráðgjöf til ferðamanna, bæði hvað höfuðborgarsvæðið varðar og landið í heild. Sölustaðir ITA eru fjölsóttustu upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Íslandi, enda er þar að finna nærfellt allt útgefið efni og upplýsingar sem gagnast ferðamönnum.
Sjálfstæði í skipulagningu ferða
Erlendir ferðamenn leitast í auknum mæli við að skipuleggja ferðalög sín sjálfir og leita því til upplýsingamiðstöðva og sérhæfðra fyrirtækja til að uppfylla til upplýsingaþörf sína. Iceland Travel Assistance hefur innan sinna vébanda sérhæft starfsfólk sem veitir ferðamönnum upplýsingar áður og eftir að til Íslands er komið. Allt það er varðar flug (t.d. til Grænlands eða Hafnar), gistingu, afþreyingu, upplifun og upplýsingar er á færi starfsfólks ITA að veita.
Hér má finna fleiri áhugaverðar síður:
www.icelandtoday.is
www.midborgarkort.is
www.visitreykjavik.is