Þjónusta við skemmtiferðaskip

Árlega hafa fjölmörg skemmtiferðaskip viðdvöl í Reykjavík og mörg hver leggja að Skarfabakka í Sundahöfn. Til að svara þjónustuþörf þeirra rekur ITA glæsilega upplýsinga- og þjónustumiðstöð við Skarfabakka. Árlega koma tugir þúsunda farþegar með skemmtiferðaskipum til landsins og fjölgar ár frá ári.
Við Skarfabakka fá ferðamenn allar nauðsynlegar upplýsingar er varða dvöl þeirra hérlendis; geta bókað sig í margvíslegar ferðir, leigt bílaleigubíla, keypt íslenska hönnun, fengið upplýsingar um Ísland, skipt gjaldeyri, fengið endurgreiddan virðisaukaskatt og nýtt sér internet- og símaþjónustu ITA.
Upplýsinga- og bókunarþjónustan er sérsniðin að þörfum skemmtiferðaskipa og lögð er megin áhersla á dagsferðir, sem bjóða farþegum uppá það besta sem Ísland og Reykjavík hafa uppá að bjóða, sem þó rúmast innan þess tímaramma sem skemmtiferðaskipið dvelur við höfn í Reykjavík. Farþegar geta skráð sig í ferðir við komu farþegaskips að morgni farið á vit ævintýrana og eru komin aftur í skip, áður en lagt er úr höfn.
Þjónustumiðstöðin við Skarfabakka er einungis opin yfir sumartímann á meðan skemmtiferðaskipin leggja leið sína til Reykjavíkur. Hér má sjá upplýsingablað á ensku um þjónustuna sem veitt er á Skarfabakka.
ITA hvetur fólk í ferðaiðnaðinum til að kynna sér það sem í boði er í þjónustumiðstöðinni við Skarfabakka og hafa samband ef áhugi er fyrir því að koma vöru eða þjónustu á framfæri. Frekari upplýsingar í síma 570 7700 eða með tölvupósti: geir@ita.is.