ITA: Iceland Travel Assistance

ITA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig  í bókunarþjónustu fyrir íslenskan ferðaiðnað, auk ferðaþjónustu á Grænlandi og í Færeyjum.Torist Information Centre Center

Fyrirtækið rekur gjaldeyrisviðskipti (Money Exchange) og þjónustar erlenda ferðamenn með endurgreiðslu á virðisaukaskatti (VAT). Samhliða þessu rekur ITA fimm verslanir sem selja einkum íslenska hönnun ásamt ferðatengdri vöru.

Fyrirtækið hóf starfsemi í júlí 2002 undir nafninu Netvísir og síðan Iceland Travel Mart sem er yfirheiti. Starfsheiti fyrirtækisins er Iceland Travel Assistance og verður það aðalheiti fyrirtækisins gagnvart ferðaþjónustuaðilum.

Markmið fyrirtækisins að bjóða fjölþætta þjónustu á öllum sviðum ferðaiðnaðarins, sem mætir kröfum  ferðamanna. Til að ná þessu markmiði mun ITA:

  • bjóða framúrskarandi vörur og þjónustu á samkeppnishæfu verði
  • byggja upp og viðhalda samböndum við viðskiptavini
  • stuðla að nýsköpun og taka þátt í ört vaxandi ferðaþjónustu á Íslandi
  • leita samstarfs við önnur fyrirtæki í ferðaiðnaðinum um athyglisverð verkefni
  • stuðla að vexti ITA í gegnum arðsöm verkefni sem skila sér í góðri afkomu til fyrirtækisins og starfsmanna


Listi yfir starfsmenn hér

Bókunarþjónsta ITA

ITA rekur upplýsinga-og
bókunarþjónustu fyrir erlenda
ferðamenn sem hafa
áhuga á að kanna
og upplifa hið stórbrotna
land sem Ísland er.

Skemmtiferðaskip

Á Skarfabakka er glæsileg 
upplýsinga- og þjónustu-
miðstöð sem sniðin að
þörfum farþega
skemmtiferðaskipanna.

Verslanir

ITA rekur fimm verslanir
í Reykjavík sem endurspegla
það besta í íslenskri hönnun.
Þar er einnig
upplýsinga og bókunar-
þjónusta fyrir ferðamenn.

Gjaldeyrisviðskipti og Tax Free

Endurgreiðsla virðisaukaskatts.
(Tax-Free) og einnig kaup
og sala af gjaldmiðlum.

Skjákerfi

Auglýsing eða kynning í skjákerfi ITA er hentug leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri og ná til fjölda einstaklinga á stuttum tíma.

www.icelandonline.com

Ný bókunarsíða sem er í senn hagnýtur valmöguleiki
fyrir ferðalanga og býður uppá óendanlega
möguleika og útfærslur. Fersk og skemmtileg síða