Reykjavík City Guide

Iceland Travel Assistance í samvinnu við Iceland Today geftur út Reykjavík City Guide. Bæklingurinn kemur út einu sinni á ári og inniheldur víðtækar upplýsingar sem ferðamenn þurfa á að halda um viðburði, menningu, listir, veitingastaði, verslanir, skoðunarferðir og afþreyingu. Í Reykjavík City Guide geta erlendir ferðamenn nálgast hagnýtar upplýsingar um það sem er á döfinni í höfuðborginni á aðgengilegan hátt.

Uppbygging ritsins

Reykjavík City Guide er öflug og hagkvæm leið til að ná til víðtæks hóps ferðamanna. Ritið skiptist í sjö kafla:

  • Söfn og sýningar
  • Mat og drykk
  • Verslun
  • Afþreyingu, skoðunarferðir og dagsferðir
  • Gistimöguleika
  • Hagnýtar upplýsingar

Dreifing

Fjölmargar ferðaskrifstofur dreifa Reykjavík City Guide beint til hópa og ráðstefnugesta sem koma til landsins á þeirra vegum. Ritinu var einnig dreift til farþega skemmtiferðaskipa sem hingað koma. Sumarið 2008 komu 80.000 manns með skemmtiferðaskipum til landsins og var bæklingnum m.a. dreift til þeirra.  Aðrir staðir sem Reykjavik City Guide er dreift á eru:

  • Upplýsingamiðstöðvar um land allt
  • Skarfabakki, viðkomustaður skemmtiferðaskipa
  • Hótel og gistiheimili
  • Söfn og sendiráð á höfuðborgarsvæðinu
  • BSÍ
  • Leifsstöð
  • Verslanir, kaffihús, veitingastaðir
  • Allir bílaleigubílar Hertz

Markhönnun hefur yfirumsjón með útgáfu og hönnun á Reykjavík City Guide fyrir hönd ITA og býður auk þess auglýsendum hönnun á auglýsingum þeirra á hagstæðu verði. Meira

Bókunarþjónsta ITA

ITA rekur upplýsinga-og
bókunarþjónustu fyrir erlenda
ferðamenn sem hafa
áhuga á að kanna
og upplifa hið stórbrotna
land sem Ísland er.

Skemmtiferðaskip

Á Skarfabakka er glæsileg 
upplýsinga- og þjónustu-
miðstöð sem sniðin að
þörfum farþega
skemmtiferðaskipanna.

Verslanir

ITA rekur fimm verslanir
í Reykjavík sem endurspegla
það besta í íslenskri hönnun.
Þar er einnig
upplýsinga og bókunar-
þjónusta fyrir ferðamenn.

Gjaldeyrisviðskipti og Tax Free

Endurgreiðsla virðisaukaskatts.
(Tax-Free) og einnig kaup
og sala af gjaldmiðlum.

Skjákerfi

Auglýsing eða kynning í skjákerfi ITA er hentug leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri og ná til fjölda einstaklinga á stuttum tíma.

www.icelandonline.com

Ný bókunarsíða sem er í senn hagnýtur valmöguleiki
fyrir ferðalanga og býður uppá óendanlega
möguleika og útfærslur. Fersk og skemmtileg síða