Bókunarþjónusta ITA - Fjölþætt þjónusta við ferðamenn

Iceland Travel Assistance rekur upplýsinga- og bókunarþjónustu fyrir erlenda og íslenska ferðamenn. Afgreiðslustaðir eru á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, Radisson Blu Saga Hotel, Icelandair Hotel Reykjavík Natura og í þjónustumiðstöð við Skarfabakka, auk Upplýsingamiðstöðar Ferðamanna í Reykjavík í samstarfi við Reykjavíkurborg og Upplýsingamiðstöð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í samstarfi við Markaðsstofu Suðurnesja. Þar fer meðal annars fram: 
  • Víðtæk upplýsingaþjónusta
  • Bókanir í ferðir, afþreyingu, gistingu og flug
  • Endurgreiðsla virðisaukaskatts
  • Gjaldeyrisviðskipti
  • Verslun með íslenska hönnun
  • Síma- og internetaðgangur

Iceland Travel Assistance heldur úti bókunarsíðu þar sem ferðamenn geta bókað stakar ferðir sem og fjölbreyttar pakkaferðir. 
www.icelandonline.com

Iceland Travel Assistance leggur áherslu á faglega og ítarlega ráðgjöf til ferðamanna, bæði hvað höfuðborgarsvæðið varðar og landið í heild. Sölustaðir ITA eru fjölsóttustu upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Íslandi, enda er þar að finna nærfellt allt útgefið efni og upplýsingar sem gagnast ferðamönnum.


Tourist Information Centre Reykjavik Iceland
 

Sjálfstæði í skipulagningu ferða

Erlendir ferðamenn leitast í auknum mæli við að skipuleggja ferðalög sín sjálfir og leita því til upplýsingamiðstöðva og sérhæfðra fyrirtækja til að uppfylla til upplýsingaþörf sína. Iceland Travel Assistance hefur innan sinna vébanda sérhæft starfsfólk sem veitir ferðamönnum upplýsingar áður og eftir að til Íslands er komið. Allt það er varðar flug (t.d. til Grænlands eða Hafnar), gistingu, afþreyingu, upplifun og upplýsingar er á færi starfsfólks ITA að veita.



Bókunarþjónsta ITA

ITA rekur upplýsinga-og
bókunarþjónustu fyrir erlenda
ferðamenn sem hafa
áhuga á að kanna
og upplifa hið stórbrotna
land sem Ísland er.

Skemmtiferðaskip

Á Skarfabakka er glæsileg 
upplýsinga- og þjónustu-
miðstöð sem sniðin að
þörfum farþega
skemmtiferðaskipanna.

Verslanir

ITA rekur fimm verslanir
í Reykjavík sem endurspegla
það besta í íslenskri hönnun.
Þar er einnig
upplýsinga og bókunar-
þjónusta fyrir ferðamenn.

Gjaldeyrisviðskipti og Tax Free

Endurgreiðsla virðisaukaskatts.
(Tax-Free) og einnig kaup
og sala af gjaldmiðlum.

Skjákerfi

Auglýsing eða kynning í skjákerfi ITA er hentug leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri og ná til fjölda einstaklinga á stuttum tíma.

www.icelandonline.com

Ný bókunarsíða sem er í senn hagnýtur valmöguleiki
fyrir ferðalanga og býður uppá óendanlega
möguleika og útfærslur. Fersk og skemmtileg síða