Þjónusta við skemmtiferðaskip
Árlega hafa fjölmörg skemmtiferðaskip viðdvöl í Reykjavík og af þeim leggja 60 þeirra að Skarfabakka í Sundahöfn. Til að svara þjónustuþörf þeirra rekur ITA glæsilega upplýsinga- og þjónustumiðstöð við Skarfabakka. Árlega koma u.þ.b. 67 þúsund farþegar með skemmtiferðaskipum til landsins og fjölgar ár frá ári. Við Skarfabakka fá ferðamenn allar nauðsynlegar upplýsingar er varða dvöl þeirra hérlendis; geta bókað sig í margvíslegar ferðir, leigt bílaleigubíla, keypt íslenska hönnun, fengið upplýsingar um Ísland, skipt gjaldeyri, fengið endurgreiddan virðisaukaskatt og nýtt sér internet- og símaþjónustu ITA.
Upplýsinga- og bókunarþjónustan er sérsniðin að þörfum skemmtiferðaskipa og lögð er megin áhersla á dagsferðir, sem bjóða farþegum uppá það besta sem Ísland og Reykjavík hafa uppá að bjóða, sem þó rúmast innan þess tímaramma sem skemmtiferðaskipið dvelur við höfn í Reykjavík. Farþegar geta skráð sig í ferðir við komu farþegaskips að morgni, farið á vit ævintýrana og eru komin aftur í skip, áður en lagt er úr höfn.
Þjónustumiðstöðin við Skarfabakka er einungis opin yfir sumartímann á meðan skemmtiferðaskipin leggja leið sína til Reykjavíkur. Hér má sjá upplýsingablað á ensku um þjónustuna sem veitt er á Skarfabakka.
ITA hvetur fólk í ferðaiðnaðinum til að kynna sér það sem í boði er í þjónustumiðstöðinni við Skarfabakka og hafa samband ef áhugi er fyrir því að koma vöru eða þjónustu á framfæri, því gífurlegur fjöldi farþega kemur til Íslands með skemmtiferðaskipum. Frekari upplýsingar í síma 570 7700 eða með tölvupósti: ita@ita.is.