Endurgreiðsla virðisaukaskatts og gjaldeyrisviðskipti
Endurgreiðsla virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og ljóst að sala á ýmsum varningi einkum þó íslenskri hönnun, hefur færst í aukanna, en auk þess ber að þakka hversu þægileg afgreiðslan er orðin, varðandi endurgreiðslu. Reynslan hefur sýnt að þetta fyrirkomulag með endurgreiðslu virðisaukaskatts áður en ferðamenn fara af landi brott hefur aukið áhuga ferðamanna á vörum og þjónustu sem óneitanlega styður við ferðaþjónustuna í leiðinni. Ferðamenn hafa tilhneygingu til að versla meira áður þeir yfirgefa landið, ef þeir hafa skilað inn virðisaukaskatts skjölum sínum og hafa jákvæða ímynd af þjónustunni sem veitt er. Auk þess styttast biðraðir á Keflavíkurflugvelli, sem oft geta orðið langar. Þessi þjónusta er til mikilla hagsbóta fyrir ferðalanga og söluaðila.
ITA býður endurgreiðslu virðisaukaskatts til ferðamanna og gjaldeyrisviðskipti á eftirtöldum stöðum:
- Upplýsingamiðstöðin, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík
- Þjónustumiðstöðin við Skarfabakka, Skarfagörðum 8, 104 Reykjavík
Vegna eðlismunar í afgreiðslu er eingöngu afgreiddir farþegar af skemmtiferðaskipum á Skarfabakka. Aðrir farþegar fá afgreiðslu í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti 2.
Afgreiðslan fer að öðru leyti fram á eftirfarandi hátt:
- Viðskiptavinurinn skilar inn "Tax-Free" ávísun sinni og fær endurgreiðsluna greidda fyrirfram í íslenskum krónum.
- Viðskiptavinurinn leggur til tryggingar kreditkort sitt og heimild er fengin fyrirfram fyrir endurgreiddri upphæð.
- Við brottför er leitast eftir að fá ávísunina stimplaða hjá endurgreiðsluaðila Iceland Refund. Skili ávísunin sér ekki til baka innan 30 daga er viðskiptavinurinn rukkaður aftur um ofangreinda upphæð á kreditkortareikningi sínum. Skili ávísunin sér á tilskildum tíma eyðist fyrirframheimildin.
Í þjónustumiðstöð Iceland Travel Assistance við Skarfabakka og í Upplýsingamiðstöðinni í Aðalstræti 2 er boðið upp á gjaldeyrisviðskipti (Money Exchange). Þar geta ferðamenn keypt og selt alla helstu gjaldmiðla heims.