ITA: Iceland Travel Assistance

ITA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig  í bókunarþjónustu fyrir íslenskan ferðaiðnað, auk ferðaþjónustu á Grænlandi og í Færeyjum.Torist Information Centre Center

Fyrirtækið rekur gjaldeyrisviðskipti (Money Exchange) og þjónustar erlenda ferðamenn með endurgreiðslu á virðisaukaskatti (VAT). Samhliða þessu rekur ITA fimm verslanir sem selja einkum íslenska hönnun ásamt ferðatengdri vöru.

Fyrirtækið hóf starfsemi í júlí 2002 undir nafninu Netvísir og síðan Iceland Travel Mart. Bæði nöfnin eru enn í gildi og nú hefur Iceland Travel Assistance bæst við og verður það aðalheiti fyrirtækisins gagnvart ferðaþjónustuaðilum. Höfuðstöðvar ITA eru í Grófartorgi, Vesturgötu 2 í Reykjavík.

Markmið fyrirtækisins að bjóða fjölþætta þjónustu á öllum sviðum ferðaiðnaðarins, sem mætir kröfum nútíma ferðamanna. ITA stefnir einnig að því að byggja upp fjölþætta þjónustu og markaðslausnir á sviði ferðaiðnaðar á Íslandi. Starfsmenn fyrirtækisins eru stöðugt að leita nýrra tækifæra og bjóða ferðaþjónustuaðilum lausnir sem mæta kröfum ferðamanna. Til að ná þessu markmiði mun ITA:

  • bjóða framúrskarandi vörur og þjónustu á samkeppnishæfu verði
  • byggja upp og viðhalda samböndum við viðskiptavini
  • stuðla að nýsköpun og taka þátt í ört vaxandi ferðaþjónustu á Íslandi
  • leita samstarfs við önnur fyrirtæki í ferðaiðnaðinum um athygliverð verkefni
  • stuðla að vexti ITA í gegnum arðsöm verkefni sem skila sér í góðri afkomu til fyrirtækisins og starfsmanna


Reykjavík City Guide

Iceland Travel Assistance í samvinnu við Iceland Today geftur út Reykjavík City Guide. Bæklingurinn kemur út einu sinni á ári og inniheldur víðtækar upplýsingar sem ferðamenn þurfa á að halda um viðburði, menningu, listir, veitingastaði, verslanir, skoðunarferðir og afþreyingu. Í Reykjavík City Guide geta erlendir ferðamenn nálgast hagnýtar upplýsingar um það sem er á döfinni í höfuðborginni á aðgengilegan hátt.
Sjá nánar hér.


Listi yfir starfsmenn hér

Bókunarþjónusta ITA

ITA rekur upplýsinga- og
bókunarþjónustu
fyrir ferðamenn,
sem hafa áhuga á að ferðast
um og upplifa hið stórbrotna
land sem Ísland er. 

Skemmtiferðaskip

Á Skarfabakka er glæsileg 
upplýsinga- og þjónustu-
miðstöð sem sniðin að
þörfum farþega
skemmtiferðaskipanna.

Verslanir

ITA rekur fimm verslanir
í Reykjavík sem endurspegla
það besta í íslenskri hönnun.
Í verslunum er einnig
upplýsinga og bókunar-
þjónusta fyrir ferðamenn.

Gjaldeyrisviðskipti og Tax Free

Endurgreiðsla á virðisaukaskatti
(Tax Free) og einnig kaup
og sala á helstu
gjaldmiðlum heims.

Skjákerfi

Auglýsing eða kynning í skjákerfi ITA er hentug leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri og ná til fjölda einstaklinga á stuttum tíma.

Hönnun og samstarf

ITA leggur metnað sinn í að
koma íslenskri hönnun og
þjónustu ferða aðila
á framfæri.

www.icelandonline.com

Ný bókunarsíða sem er í senn hagnýtur valmöguleiki
fyrir ferðalanga og býður uppá óendanlega
möguleika og útfærslur. Fersk og skemmtileg síða