Upplýsingar og kynningar í skjákerfi ITA



ITA í samvinnu við Netvísi Skjákerfi, býður fyrirtækjum hentuga leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri. Um er að ræða 42 og 50 tommu flatskjái sem ætlaðir eru til birtingar á hagnýtum upplýsingum og auglýsingum. Flatskjáirnir eru staðsettir á eftirtöldum stöðum:


 
  • Flugstöðin í Reykjavík
  • Flugstöðin á Akureyri
  • Flugstöðin á Egilsstöðum
  • Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík
  • Umferðarmiðstöðin BSÍ
 


    Samtals fara yfir milljón farþegar og gestir um þessa staði á ári hverju. Um 80% þeirra eru Íslendingar og 20% erlendir ferðamenn.

    Reykjavíkurflugvöllur

    Fjöldi birtinga hverrar 20 sek auglýsingar:

     Daglega  u.þ.b.  60 sinnum
     Vikulega  u.þ.b.  420 sinnum
     Mánaðarlega  u.þ.b.  1.800 sinnum
     Árlega
     u.þ.b.  22.000 sinnum

    Flugstöðin í Reykjavík er einn fjölfarnasti staður Íslands. Þar eru tveir 50 tommu skjáir, í innritunarsal og biðsal. Skjáirnir birta hagnýtar upplýsingar eins og komur og brottfarir flugvéla, nýjustu fréttir af visir.is, upplýsingar um veður og færð, auk kynninga frá fyrirtækjum. Kynningar geta verið frá 5 sek. upp í 4 mínútur að lengd og birtist hver kynning á 15 mínútna fresti. SCALA hugbúnaður stýrir birtingu myndefnisins og hægt er að birta myndskeið, sjónvarpsauglýsingar og stakar skjámyndir.

    Opnunartími flugstöðvarinnar er frá 07:00 til 23:30.

    Hafðu samband í síma 570 7770 ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða sendu fyrirspurn á ita[hjá]ita.is 

    Uppsetning á kynningarskjám

    ITA  sér uppsetningu og rekstur á skjákerfunum og byggist lausnin á kerfunum á SCALA, einum öflugasta stafræna birtingarhugbúnaðinum sem völ er á í dag.  SCALA fylgir vefrænn hugbúnaður, sem gerir umsjónarmanni kleift að stýra efni og birtingu þess á skjánum úr hvaða tölvu sem er.

    Meðal viðskiptavina eru:

    Flugfélag Íslands:     Upplýsingaskjáir í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli
    Reykjavíkurborg:       Upplýsingaskjáir í þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar
    The Centre:              Upplýsingamiðstöð Ferðamanna í Reykjavík

    Bókunarþjónusta ITA

    ITA rekur upplýsinga- og
    bókunarþjónustu
    fyrir ferðamenn,
    sem hafa áhuga á að ferðast
    um og upplifa hið stórbrotna
    land sem Ísland er. 

    Skemmtiferðaskip

    Á Skarfabakka er glæsileg 
    upplýsinga- og þjónustu-
    miðstöð sem sniðin að
    þörfum farþega
    skemmtiferðaskipanna.

    Verslanir

    ITA rekur fimm verslanir
    í Reykjavík sem endurspegla
    það besta í íslenskri hönnun.
    Í verslunum er einnig
    upplýsinga og bókunar-
    þjónusta fyrir ferðamenn.

    Gjaldeyrisviðskipti og Tax Free

    Endurgreiðsla á virðisaukaskatti
    (Tax Free) og einnig kaup
    og sala á helstu
    gjaldmiðlum heims.

    Skjákerfi

    Auglýsing eða kynning í skjákerfi ITA er hentug leið til að koma vöru og þjónustu á framfæri og ná til fjölda einstaklinga á stuttum tíma.

    Hönnun og samstarf

    ITA leggur metnað sinn í að
    koma íslenskri hönnun og
    þjónustu ferða aðila
    á framfæri.

    www.icelandonline.com

    Ný bókunarsíða sem er í senn hagnýtur valmöguleiki
    fyrir ferðalanga og býður uppá óendanlega
    möguleika og útfærslur. Fersk og skemmtileg síða